mánudagur, 9. janúar 2012

Nýjir hlutir, nýjir tímar

Eftir svolitlar hugsanir ákvað ég að reyna að prófa einn nýjan hlut í annari hverri viku þessa árs, 26 vikur. Veit ekki enþá hvernig mér á að takast það en ætla þó að reyna eins mikið og ég get.

Vika 2 er myndaprjón, er að vinna í því núna svo það ætti að koma inn fljótlega.

Einhver með hugmynd til að aðstoða mig. og við spurningunni þá er svarið Nei þarf ekki að innihalda handavinnu en væri gaman að prófa nýja handavinnu, svona ef ég á eftir að prófa eitthvað

Kveðja

sunnudagur, 8. janúar 2012

Nýtt ár



Eins og vanalega líður allt of langur tími á milli þess sem ég pósta. Tók svolitla pásu í haust og prjónaði frekar lítið en er aðeins að komast af stað aftur. Er núna að vinna í setti fyrir drenginn minn ásamt því að vera með sjal sem bíður eftir að ég byrji en það fær að bíða meðan settið er klárað

Fyrir jól prjónaði ég ferlega æðislega
lopapeysu og svo tvenn dúkkusett en annað settið var í afmælisgjöf fyrir litlu frænku og hitt var selt. Settin voru eins nema að aðalliturinn hjá litlu frænku var dökkbleikur




Eins fékk litla frænka snilldar flotta húfu í jólagjöf en ég fann uppskriftina að henni inná Ravelry og ákvað að skella í hana. Húfan er úr tvöföldu kambgarni. Get ekki hætt að dásama þetta snilldar æðislega garn enda á ég svo mikið af því og stenst varla að versla mér það ef ég sé einhverja æðislega liti


Ég dró svo systir mína með mér í handprjónasambandið og
þar verlaði ég helling af ull til að þæfa en gleymdi að taka myndir af flestu nema að þessi sería fór í jólapakkan til systir minnar. Á eftir að skella í fleiri fljótlega

En síðan er síðasta myndin af Gramas favorid dishcloth en sú uppskrift er víst alveg svakalega gömul og alveg snilldar skemmtilegt að prjóna eftir henni. Gaf ömmu Gyðu hana í jólagjöf ásamt koddanum sem ég var búin að prjóna (vantar mynd) en þessi var prjónaður þegar ég var síðast með drenginn á spítalanum.

En þarf víst að redda mér eitthvað af myndum til að klára hérna en síðan á ég eftir að klára settið sem ég er að prjóna núna en það verður alveg æðislegt

Kveðja bandóður prjónari

föstudagur, 25. mars 2011

Börn.is og prjón

Alltaf ætla ég að koma mér af stað hérna en ekkert gerist. Er búin að vera á fullu með frábærum hóp fólks í öllu sem tengist www.börn.is svo lítið hefur gerst í föndrinu en hef þó verið með prjónana með mér þar sem ég er að reyna að klára sjal sem er nú alveg að verða búið. Er að nota garn sem ég fékk í swap 2 á er. Þvílíkt yndislegt garn.

En annars hef ég nú líka verið að skoða fríar uppskriftir á netinu og verið að vista þær á google doc sem er bara algjör snilld síðan ef ég er að vista myndir þá er ég með síðu á facebook undir það en hún er reyndar lokuð. Þá er ég ekki að fylla tölvuna mína af þessu öllu og kemst þá í allar þessar uppskriftir hvar og hvenær sem er

En núna þíðir ekkert að sitja hér, gerist ekkert á meðan. Myndir af sjalinu koma von bráðar

þriðjudagur, 1. mars 2011

Alltaf er einhverntíman fyrst

Hef ekkert verið að blogga hér hingað til en er svona að koma mér af stað. Er búin að vera að prjóna svo mikið að undanförnu og set svosem allt inná ravelry en bara gaman að gera bloggað um það líka
Ég hef verið að fikta við að pjóna hin ýmsu verkefni en síðasta árið hefur drengurinn fengið tvær peysur.
Sú fyrri var úr smart og kláraði ég hana í apríl í fyrra en þar sem ég prjónaði hana í stærð 6 þá er hún heldur stór núna en þó svakalega falleg og auðvitað gerði ég þessa fallegu peysu í stíl.

Seinni peysan er úr léttlopa og heitir einfaldlega barnalopapeysa með hettu (frí uppskrift á www.handknit.is ). Ég valdi þessa æðislegu liti h
anda honum og er hann líka svona rosalega ánægður með hana en á reyndar eftir að skella rennilás í hana og er það alveg næsta verk á dagskrá svo hann geti notað hana. Er búin að prjóna húfu með þessum litum en notaði allt annað munstur í hana en passar þó vel við.


Á einum tímapúnti langaði mig rosalega til að prófa eitthvað nýtt og valdi því kambgarnið og valdi litina áður en ég ákvað nákvæmlega hvað ég ætlaði að gera við það en var þó nokkuð viss um að ég ætlaði að gera ungbarnapeysu. Þetta garn hef ég ekki prófað það áður en fékk hjálp hjá elskulegu ömmu minni sem reddaði mér uppskrift sem hún hefur notað lengi í þær peysur sem hún hefur prjónað. Síðan fann ég munstur sem mig langaði að gera og var útkoman þessi.




Eftir að hafa prjónað þessa hrikalega flottu peysu þá fór ég að prufa mig áfram og keypti alveg góðan slatta af kambgarni sem er næst á dagskrá að finna verkefni fyrir. Þessi stafli er reyndar allt úr
"gömlu" litunum sem ég keypti á rosa fínu verði og ætla að leika mér með á næstunni.


Hef lokið við mikið fleiri verkefni en þið getið fundið mig á Ravelry undir Eastrose

Kveðja

miðvikudagur, 26. maí 2010

jæja er svosem ekkert dugleg að föndra sjálf en er svona að reyna að komast í gírinn. Er búin að finna mikið sniðugt á netinu sem verður sett hér inn líka