Hef ekkert verið að blogga hér hingað til en er svona að koma mér af stað. Er búin að vera að prjóna svo mikið að undanförnu og set svosem allt inná ravelry en bara gaman að gera bloggað um það líka
Ég hef verið að fikta við að pjóna hin ýmsu verkefni en síðasta árið hefur drengurinn fengið tvær peysur.
Sú fyrri var úr smart og kláraði ég hana í apríl í fyrra en þar sem ég prjónaði hana í stærð 6 þá er hún heldur stór núna en þó svakalega falleg og auðvitað gerði ég þessa fallegu peysu í stíl.

Seinni peysan er úr léttlopa og heitir einfaldlega barnalopapeysa með hettu (frí uppskrift á www.handknit.is ). Ég valdi þessa æðislegu liti h
anda honum og er hann líka svona rosalega ánægður með hana en á reyndar eftir að skella rennilás í hana og er það alveg næsta verk á dagskrá svo hann geti notað hana. Er búin að prjóna húfu með þessum litum en notaði allt annað munstur í hana en passar þó vel við.
Á einum tímapúnti langaði mig rosalega til að prófa eitthvað nýtt og valdi því kambgarnið og valdi litina áður en ég ákvað nákvæmlega hvað ég ætlaði að gera við það en var þó nokkuð viss um að ég ætlaði að gera ungbarnapeysu. Þetta garn hef ég ekki prófað það áður en fékk hjálp hjá elskulegu ömmu minni sem reddaði mér uppskrift sem hún hefur notað lengi í þær peysur sem hún hefur prjónað. Síðan fann ég munstur sem mig langaði að gera og var útkoman þessi.

Eftir að hafa prjónað þessa hrikalega flottu peysu þá fór ég að prufa mig áfram og keypti alveg góðan slatta af kambgarni sem er næst á dagskrá að finna verkefni fyrir. Þessi stafli er reyndar allt úr

"gömlu" litunum sem ég keypti á rosa fínu verði og ætla að leika mér með á næstunni.
Hef lokið við mikið fleiri verkefni en þið getið fundið mig á Ravelry undir Eastrose
Kveðja