
Eins og vanalega líður allt of langur tími á milli þess sem ég pósta. Tók svolitla pásu í haust og prjónaði frekar lítið en er aðeins að komast af stað aftur. Er núna að vinna í setti fyrir drenginn minn ásamt því að vera með sjal sem bíður eftir að ég byrji en það fær að bíða meðan settið er klárað
Fyrir jól prjónaði ég ferlega æðislega
lopapeysu og svo tvenn dúkkusett en annað settið var í afmælisgjöf fyrir litlu frænku og hitt var selt. Settin voru eins nema að aðalliturinn hjá litlu frænku var dökkbleikur

Eins fékk litla frænka snilldar flotta húfu í jólagjöf en ég fann uppskriftina að henni inná Ravelry og ákvað að skella í hana. Húfan er úr tvöföldu kambgarni. Get ekki hætt að dásama þetta snilldar æðislega garn enda á ég svo mikið af því og stenst varla að versla mér það ef ég sé einhverja æðislega liti
Ég dró svo systir mína með mér í handprjónasambandið og
þar verlaði ég helling af ull til að þæfa en gleymdi að taka myndir af flestu nema að þessi sería fór í jólapakkan til systir minnar. Á eftir að skella í fleiri fljótlega
En síðan er síðasta myndin af Gramas favorid dishcloth en sú uppskrift er víst alveg svakalega gömul og alveg snilldar skemmtilegt að prjóna eftir henni. Gaf ömmu Gyðu hana í jólagjöf ásamt koddanum sem ég var búin að prjóna (vantar mynd) en þessi var prjónaður þegar ég var síðast með drenginn á spítalanum.
En þarf víst að redda mér eitthvað af myndum til að klára hérna en síðan á ég eftir að klára settið sem ég er að prjóna núna en það verður alveg æðislegt
Kveðja bandóður prjónari
Engin ummæli:
Skrifa ummæli