sunnudagur, 5. febrúar 2012

Nemó smíði

Setti mér mrkmið hér fyrr á árinu sem þegar er brostið. En samt ekki...

Á þessu ári er fast markmið sem er 1par af vettlingum í hverjum mánuði þessa árs. Hef lokið við janúar vettlingana sem urðu að Nemó vettlingum fyrir stubbin.
Febrúar vettlingarnir eru algjört brjálæði en þeir innihalda mikið aaf köðlum og eru seinlegir en annar er nánast búin og nægur tími til aða klára hinn. Set inn myndir bráðum

En eitt sem ég prófaði að ger nýtt í janúar var að ég prjónaði nemó húfu fyrir Friðrik og er ég alveg einstaklega ánægð með hana. Eins og sést á myndunum þá er hann líka alve
g svakalega ánægður með húfuna. Uppskriftina fann ég á Ravelry
og heitir ded fish hat og er bara mjög skemmtileg í framkvæmd. Augunum reddaði ég með því að kaupa filt í næstu föndurbúð á smá klink og klipp út.



1 ummæli: